
Sólin hefur verið vel nýtt á Austurlandi síðustu daga í eftirlit og úttektir.
Eitt af því sem stóð sérstaklega upp úr var lerkið á Davíðsstöðum. Vöxturinn hefur farið fram úr væntingum og hæsta plantan sem mæld var náði tæpum 80 cm á hæð.
Það er alltaf ánægjulegt að sjá árangurinn koma svona skýrt í ljós. Með reglulegu eftirliti fáum við dýrmæta innsýn í hvernig mismunandi trjátegundir dafna við ólíkar aðstæður og getum nýtt þá þekkingu til að byggja upp enn sterkari skóga til framtíðar.
Við hlökkum til að taka saman niðurstöður úr úttektunum á næstu dögum.